Aðgengilegt á opnunartíma




Opið allan sólarhringinn (ef veður og færð leyfa)






Aðgengi, dýr og börn




Aðgengi
Líkamlegt aðgengi
Skynjunaraðgengi
Aðgengi heyrnarskertra/döff
Bílastæði slétt malbik, þrepalaust aðgengi að helstu stöðum.
Salerni aðgengilegt hjólastólum, engin neyðarbjalla.
Miðar/Verslun: Ekki aðgengilegt fyrir hjólastóla eins og er.
Tilgátuhús: bílfært að dyrum, annars jafn og góður stígur. Þröskuldar og 2 ójöfn þrep. Ójafnt gólf. Sæti í boði alla heimsóknina.
Náttúrustígur: Óklætt yfirborð, hliðarhalli, ójöfnur, þrep.
Stígur með upplýsingum: Malbyggður stígur að skiltum. Hægt að horfa yfir rústirnar en er ekki aðgengilegt nema að fara af stígnum.
Nestisaðstaða: Vel aðgengileg.
Húsið getur verið þétt setið í leiðsögnum – látið okkur vita ef það er vandamál, þar sem hægt er að lágmarka áhrif þess.
Leiðsagnir eru að mestu hljóðlátar, leiðsögumaður talar og gestir spyrja, engin bakgrunnshljóð, en gestir geta verið mis háværir.
Lýsing í húsinu er mild, en eldur er í miðju rýminu. Það er hægt að taka þátt í heimsókninni án þess að vera nærri eldinum.
Endurgerðir gripir ganga á milli gesta í leiðsögn, m.a. óbeitt sverð. Það er hægt að sleppa því að taka þátt í þessum lið, komi fram ósk um það.
Upplýsingar um svæðið og sögu staðarins eru aðgengilegar í texta á ensku, íslensku og þýsku.
Leiðsögn er í töluðu máli og því mælum við með speech-to-text (tal í texta) lausnum til að skila talmáli. Starfsmenn eru einnig vanir notkun hljóðnema sem senda beint í heyrnartæki.
Aðgengi sjónskertra/blindra
Upplýsingar og miða má nálgast með samskiptum við starfsfólk. Leiðsögn er í talmáli og því aðgengileg, en gestir ættu að varast að fara um rýmið á meðan á leiðsögn stendur, vegna ójafns umhverfis.
Tilgátuhúsið sjálft er mjög aðgengilegt, þar sem leyfilegt er að njóta allra muna og hússins sjálfs með höndum og finna þannig yfirborðsfleti. Þetta er einstakt tækifæri til að njóta sögunnar því flest söfn sýna gripi sína á bak við gler. En þar sem okkar gripir eru endurgerðir má snerta þá alla. Leiðsögumennirnir okkar eru afar viljugir að aðstoða við að komast um húsið og upplifa það allt.